Posts

Mánaðarleg yfirferð - Markmið 2017

Image
Einhvernveginn tekst mér þetta alltaf... Er rosalega dugleg að blogga fyrsta mánuðinn og þarf að halda aftur að mér að setja ekki nokkur blogg á dag en svo þegar líður á þá steingleymist þetta! Það er nóg að gera hjá mér í náminu. Fyrstu tvö lokaprófin í næstu viku, Vöruþróun & nýsköpun og  Áætlanagerð & Rekstrargreiningu. Heilsugírinn mætti ganga betur en það eru 5 vikur í afmælið svo er komin í 5 vikna áskorun! Ég er á sama prógrami og árið 2014 og er mjög ánægð með það <3 So far þá hef ég náð að fara eftir markmiðunum mínum fyrir 2017. ·          Líða vel í eigin líkama og trúa því: Ég þakka fyrir á hverjum degi að geta hreyft mig og hafa orku út daginn. Mér líður kannski ekkert alltaf vel í eigin líkama en hvern dag kemst ég nær markmiðinu. ·          Hætta draga mig niður fyrir smáatriði: Ég hef algjörlega náð að henda þessu útum 2016 gluggann og hleypa...

Hvernig gengur ykkur?

Image
Núna fer fyrsti mánuður ársins að klárast... Ég vona að ykkur gangi mjög vel :) Fyrsti mánuðurinn er oftast erfiðastur. Fráhvarfseinkenni og einfalt að detta í "þæginda" gírinn.  En hey til hvers erum við að þessu?  Til að líða vel í eigin líkama, vera ánægðari með sjálfa/n sig, hafa meiri orku yrir daginn og það mikilvægasta af öllu... VERA FYRIRMYND FYRIR BÖRNIN OKKAR! Eins og ég hef nefnt áður þá skiptir mig mestu máli að vera flott fyrirmynd fyrir son minn, að hann viti að heilsusamlegur lífstíll er það sem gerir mömmu hans ánægða! Ég get alveg viðurkennt að ég er búin að vera skríða þetta áfram, nokkrum sinnum böstað sjálfa mig fyrir hras en þá er eina í stöðunni að standa aftur upp og halda áfram ferðinni því jú öll skref í rétta átt eru litlir sigrar. Við erum misjöfn og á misjöfnum stað í lífstílsferlinum. Langar að segja ykkur frá einu: Ég er búin að vera mjög þreytt og lasinn undanfarna viku en mundi síðan í gærmorgun að ég ætti þett...

Fimmtudagspælingar og pepp

Image
Jæja þá er janúar byrjaður og vonandi allir að huga að markmiðum sínum hver sem þau eru. Munum að við eigum aðeins eitt líf svo ekki setja líf þitt með boðum og bönnum. Hugsaðu frekar, hvað vilt þú mest af öllu gera og hvernig viltu að þér líði? Taktu einn dag í einu og byrjaðu daginn á að hugsa jákvætt. Þú ákveður sjálf/ur hvað þú vilt gera. Þú ákveður sjálfur hver þú vilt vera. Því lífið heldur áfram þótt þú sért nokkrum númerum meiri eða minni en þú vilt sjá á vigtinni. Þetta er allt saman ferðalag sem þú verður að læra njóta meðan þú siglir í gegnum það. Það mun koma stormur, það mun koma tímabil sem reynir að steypa þér fram af skipinu þínu EN þá er það eina að halda ennþá fastar í sínar ákvarðanir og sigla í gegnum þessar hindranir því það mun líka koma góðir dagar. Þar sem litlu sigrarnir nást og svo loksins sá allra stærsti sem þú hefur beðið eftir. En á meðan er best að lofa sér að njóta alls ferðalagsins. Horfðu fram á við og sjáðu allt það fallega í kringum þig....

Gleðilegt nýtt ár, 2017

Image
Gleðilegt nýtt ár elsku vinir, fjölskylda og fylgjendur ! Fagnið nýja árinu með þeim sem ykkur þykir vænst um. Skrifið niður markmið fyrir næsta ár en passið að það sé raunhæft. Ég tel að markmið eigi að vera raunveruleg og ekki setja of há markmið. Öfgar og há markmið eru af hinu slæma og enda að flestu tilvikum með falli. Ég ætla vera dugleg að sinna foreldrahlutverkinu, hitta fjölskyldu mína, hreyfa mig daglega og næra mig af mat sem fer vel með mig. Eins og ég sagði eitt sinn á blogginu mínu: Lífið er of stutt fyrir vanlíðan, depurð og drama séstaklega. Verum dugleg að vera kringum fólk sem fær okkur til að brosa og okkur líður vel í kringum. Þeir sem gera okkur ekki góðs eiga ekki að fá að vera hluti af okkar lífi, það er bara þannig. Njótum þess að vera til. Lífið er svo stútfullt af allskonar ævintýrum, verum dugleg að grípa þau og njóta þeirra.  Ég ætla njóta nýja ársins til fulls, bæta mig ávallt á hverjum degi sem góðri mömmu sem er ...

Markmið fyrir 2017

Image
    Be happy, be you <3 Ég ákvað fyrr í þessum mánuði að vera dugleg að blogga, þá aðalega fyrir mig til að halda mér við efnið. Mér hefur ekki liðið vel þetta ár en tel mig sterkan karakter svo ekki annað í stöðunni en að byrja nýtt ár algjörlega upp á nýtt og finna aftur hamingjuna í lífinu. Aron Leví er byrjaður að fara aðra hverja helgi til föðurfjölskyldu sinnar og er það yndislegt. Hann kemur alltaf rosalega ánægður til baka. Ég ætla því að nota þær helgar til að hugsa um mig og rækta sambandið við sjálfa mig. Því hvernig get ég elskað aðra ef ég elska ekki einu sinni sjálfa mig? Ég keypti mér dagbók sem ég tel að muni hjálpa mér í gegnum þetta ferli og hlakka ég til að byrja skrifa í hana mínar hugleiðingar, planað fram í tímann eitthvað sem ég þarf að gera og vil gera og fleira sniðugt. Ég er búin að vera með mjög slæmt mataræði síðustu mánuði. Suma daga er ég mjög dugleg, aðra daga gleymi ég að borða og suma daga borða ég ekkert annað e...

Hálfnuð með háskólanámið!

Image
HÁLFNUÐ! Þessi tilfinning er svolítið geðveik en samt svo dásamleg! Hvert fór tíminn? Ég sver það! Þetta er ein af bestu ákvörðum lífs míns (fyrir utan auðvitað að búa til Aron minn). Þetta nám gefur mér svo rosalega mikið og mun nýtast mér svo vel ! Þótt ég sé "bara" hálfnuð þá hef ég lokið réttindum til landvarðar, lært hvernig skal búa til stíga svo þeir falli sem best að landslagi, hvernig fjöll myndast, lært að þekkja bergmynstur, klárað réttindi í bókhaldi fyrir smærri fyrirtæki, lært hvernig best sé markaðsetja fyrirtæki, lært hvernig eigi að skiluleggja viðburði og hátíðir, skilið hversu mikilvæg umhverfismál eru fyrir jörðina, áttað mig betur á fólksfækkunar vandamálinu á landsbyggðinni, lært hvernig bera eigi vín fram, farið í mína fyrstu hellaskoðun og síðast en ekki síst lært hversu fallegar byggingarnar hjá Blue Lagoon eru. Þvílík fagmennska þar á ferð og fellur vel að landslagi. Allt þetta hefur hægt og rólega mótað persónuna sem ég ...

Nýtt bloggár 2016!

Image
Ef það er ekki tími fyrir ný markmið á nýju ári þá veit ég ekki hvenær. 365 auðar blaðsíður til að fylla uppí & gera þær algjörlega að manns eigin. Ég hef aldrei verið hrifin af orðinu áramótaheit þótt það sé vissulega gert sem falleg hefð. Ég orða þetta frekar sem markmið 2016. Mín markmið fyrir 2016 eru ekkert ólík árinu 2015. Líða vel í eigin líkama og trúa því.  Að draga sig niður fyrir smáatriði er ekki í boði árið 2016 Dugleg að mæta á æfingar og gera mitt besta í hvert skipti. Vera dugleg að þyngja hjá mér lóðin - allar áskoranir eru til góðs. Eyða meiri tíma með fjölskyldu minni, þeim sem mér þykir vænst um. Og að lokum að vera dugleg að skora á sjálfa mig að gera æfinguna RX (crossfit-mál) , ásamt því að bæta upphífingarnar mínar og Double Unders (tvöfalt sipp) . Ég tel að markmið eigi að vera raunveruleg og ekki setja of há markmið. Öfgar og há markmið eru af hinu slæma og enda að flestu tilvikum með falli. Munum að andleg líðan, að þykja væn...